 
Þrymskviða
- 1. Reiður var þá Vingþór
- er hann vaknaði 
- og síns hamars 
- um saknaði, 
- skegg nam að hrista, 
- skör nam að dýja, 
- réð Jarðar bur 
- um að þreifast.
 
- 2. Og hann það orða 
- alls fyrst um kvað:
- Heyrðu nú, Loki, 
- hvað eg nú mæli 
- er eigi veit 
- Jarðar hvergi 
- né upphimins: 
- ás er stolinn hamri.
 
- 3. Gengu þeir fagra 
- Freyju túna 
- og hann það orða 
- alls fyrst um kvað:
- Muntu mér, Freyja, 
- fjaðurhams ljá 
- ef eg minn hamar 
- mættag hitta.
 
- Freyja kvað:
- 4. Þó mynda eg gefa þér 
- þótt úr gulli væri 
- og þó selja 
- að væri úr silfri.
 
- 5. Fló þá Loki, 
-   fjaðurhamur dundi,  
- uns fyr utan kom 
- ása garða 
- og fyr innan kom 
- jötna heima.
 
- 6. Þrymur sat á haugi,
- þursa drottinn,
- greyjum sínum
- gullbönd snöri 
- og mörum sínum
- mön jafnaði.
 
- Þrymur kvað:
- 7. Hvað er með ásum?
- Hvað er með álfum?
- Hví ertu einn kominn
- í Jötunheima?
 
- Loki kvað:
- Illt er með ásum,
- illt er með álfum;
- hefir þú Hlórriða
- hamar um fólginn?
 
- Þrymur kvað:
- 8. Eg hefi Hlórriða.       
- hamar um fólginn
- átta röstum
- fyr jörð neðan.
- Hann engi maður
- aftur um heimtir
- nema færi mér
- Freyju að kvæn.
 
- 9. Fló þá Loki,
-   fjaðurhamur dundi, 
- uns fyr utan kom
- jötna heima
- og fyr innan kom
- ása garða.
- Mætti hann Þór
- miðra garða 
- og hann það orða
- alls fyrst um kvað:
 
- 10. Hefir þú erindi
- sem erfiði?
- Segðu á lofti 
- löng tíðindi.
- Oft sitjanda
- sögur um fallast
- og liggjandi
- lygi um bellir.
 
- Loki kvað:
- 11. Hefi eg erfiði
- og erindi.
- Þrymur hefir þinn hamar,
- þursa drottinn.
- Hann engi maður
- aftur um heimtir
- nema honum færi
- Freyju að kvon.
 
- 12. Ganga þeir fagra
- Freyju að hitta
- og hann það orða
- alls fyrst um kvað:
- Bittu þig, Freyja,
- brúðar líni;
- við skulum aka tvö
- í Jötunheima.
 
- 13. Reið varð þá Freyja
- og fnásaði,
- allur ása salur
- undir bifðist,
- stökk það hið mikla
- men Brísinga:
- Mig veistu verða 
- vergjarnasta
- ef eg ek með þér 
- í Jötunheima.
 
- 14. Senn voru æsir
- allir á þingi
- og ásynjur
- allar á máli
- og um það réðu
- ríkir tívar
- hve þeir Hlórriða
- hamar um sætti.
 
- 15. Þá kvað það Heimdallur,
- hvítastur ása,
- vissi hann vel fram
- sem vanir aðrir:
- Bindum vér Þór þá
- brúðar líni,
- hafi hann ið mikla
- men Brísinga.
 
- 16. Látum und honum
- hrynja lukla
- og kvenvoðir
- um kné falla
- en á brjósti 
- breiða steina
- og haglega 
- um höfuð typpum.
 
- 17. Þá kvað það Þór,
- þrúðugur ás: 
- Mig munu æsir
- argan kalla
- ef eg bindast læt
- brúðar líni.
 
- 18. Þá kvað það Loki
- Laufeyjar sonur:
- Þegi þú, Þór,
- þeirra orða.
- Þegar munu jötnar
- Ásgarð búa
- nema þú þinn hamar
- þér um heimtir.
 
- 19. Bundu þeir Þór þá
- brúðar líni
- og inu mikla 
- meni Brísinga,
- létu und honum
- hrynja lukla
- og kvenvoðir 
- um kné falla
- en á brjósti
- breiða steina
- og haglega 
- um höfuð typptu.
 
- 20. Þá kvað Loki
- Laufeyjar sonur:
- Mun eg og með þér
- ambátt vera,
- við skulum aka tvö
- í Jötunheima.
 
- 21. Senn voru hafrar
- heim um reknir,
- skyndir að sköklum,
- skyldu vel renna.
- Björg brotnuðu,
- brann jörð loga,
- ók Óðins sonur
- í Jötunheima.
 
- 22. Þá kvað það Þrymur,
- þursa drottinn:
- Standið upp, jötnar,
- og stráið bekki. 
- Nú færið mér 
- Freyju að kvon
- Njarðar dóttur
- úr Nóatúnum.
 
- 23. Ganga hér að garði
- gullhyrndar kýr,
- öxn alsvartir
- jötni að gamni;
- fjöld á eg meiðma,
- fjöld á eg menja,
- einnar mér Freyju
- ávant þykir.
 
- 24. Var þar að kveldi 
- um komið snemma
- og fyr jötna
- öl fram borið.
- Einn át uxa,
- átta laxa,
- krásir allar
- þær er konur skyldu,
- drakk Sifjar ver
- sáld þrjú mjaðar.
 
- 25. Þá kvað það Þrymur,
- þursa drottinn:
- Hvar sáttu brúðir
- bíta hvassara?
- Sák-a eg brúðir
- bíta breiðara
- né inn meira mjöð
- mey um drekka.
 
- 26. Sat in alsnotra 
- ambátt fyrir
- er orð um fann
- við jötuns máli:
- Át vætur Freyja
- átta nóttum,
- svo var hún óðfús
- í Jötunheima.
 
- 27. Laut und línu,
- lysti að kyssa,
- en hann utan stökk
- endlangan sal:
- Hví eru öndótt 
- augu Freyju?
- Þykir mér úr augum
- eldur um brenna.
 
- 28. Sat in alsnotra 
- ambátt fyrir
- er orð um fann
- við jötuns máli:
- Svaf vætur Freyja
- átta nóttum,
- svo var hún óðfús
- í Jötunheima.
 
- 29. Inn kom in arma
- jötna systir,
- hin er brúðfjár
- biðja þorði:
- Láttu þér af höndum
- hringa rauða,
- ef þú öðlast vilt
- ástir mínar,
- ástir mínar,
- alla hylli.
 
- 30. Þá kvað það Þrymur, 
- þursa drottinn:
- Berið inn hamar
- brúði að vígja,
- leggið Mjöllni
- í meyjar kné,
- vígið okkur saman
- Várar hendi.
 
- 31. Hló Hlórriða
- hugur í brjósti
- er harðhugaður
- hamar um þekkti;
 
- Þrym drap hann fyrstan,
- þursa drottin,
- og ætt jötuns
- alla lamdi.
 
- 32. Drap hann ina öldnu
- jötna systur,
- hin er brúðfjár
- um beðið hafði,
- hún skell um hlaut
- fyr skillinga,
- en högg hamars
- fyr hringa fjöld.
- Svo kom Óðins sonur
- endur að hamri.
[legal]
[privacy]
[GNU]
[policy]
[cookies]
[netiquette]
[sponsors]
[FAQ]
[man]
Polarhome, production since 1999.
Member of Polarhome portal.
|  | Vote for polarhome 
   | 
